Nýtt uppistand: HRINGI Eftir smá!
Ég sný aftur með glænýtt uppistand, Hringi eftir smá!
Að þessu sinni tek ég fyrir tengsl og þær fáránlegu og fyndnu flækjur sem geta fylgt þeim. Þörfin fyrir að tilheyra og vera hluti af er sterk – en samt safnast upp hjá okkur ósvöruð skilaboð og símtöl, svo ekki sé minnst á kaffi- og matarboðin sem hanga enn í lausu lofti.
Hringi eftir smá! er persónuleg og stórskemmtileg uppistandssýning um allt vesenið sem fylgir því að þurfa á hvort öðru að halda.
Tilvalið tækifæri til að fara með einhverjum sem þú ert alltaf á leiðinni að hringja í eða hitta eftir smá!
Það má segja að ég hafi rutt mér til rúms á undanförnum árum í íslensku uppistandi með mínum einlæga, bráðfyndna og fræðandi stíl, enda sýnt fyrir fullu húsi í Tjarnarbíó og út um allt land.
Leikstjórn er í höndunum á minni allra bestu konu Dóra Jóhannsdóttir og við skrifum handritið saman.
Ég hlakka til að sýna fyrir ykkur á nýju ári!